laugardagur, 31. maí 2008

Berlin!

Jaeja tha erum vid loksins lagdar af stad og akkurat nuna erum vid i Berlin. Komum til Kaupmannahafnar frekar seint i gaer og endudum a tvi ad labba um thar i leit ad mat i adal horugotu baejarins, vid vorum svo saklausar ad vid heldum fyrst ad allar thessar konur hlytu bara ad vera ad bida eftir einhverjum a thessum gotuhornum en o nei, thad reyndist ekki vera thannig. "Looking for a date?" Ehm, nei. Vid komumst ad tvi ad fall er fararheill thar sem hradbanki gleypti kortid hennar Melkorku rett eftir ad vid lentum sem var frekar mikid skull vaegast sagt. Komumst tho a leidarenda thar sem fraenka hennar Melkorku skaut skjolhusi yfir okkur og okkur tokst ad sofa i svona 5 tima adur en vid maettum aftur a lestarstodina klukkan half-atta. Reyndar for ekki lestin fyrr en half tiu og a thessum tima eyddum vid timanum i ad fylgjast med lestarstodvaronunum, gaman ad segja fra tvi ad vid hittum einmitt einn islenskan rona strax fyrsta kvoldid okkar. Okkur tokst tho loksins ad na lest til Hamburgar og thadan til Berlinar thar sem vid erum staddar nuna. Vid erum a alveg frabaeru hosteli (kannski adallega thar sem her er mikill fjoldi af karlmonnum sem eru mjog heppnir med utlit) og hofum hugsad okkur ad lita adeins a naeturlifid i kvold og nota naestu daga i ad turistast og skoda Brandenburgarhlidid, Berlinarmurinn og fleira. Erum ekki alveg bunar ad akveda hvad vid gerum naest en erum ad hugsa um ad fara naest til Amsterdam og thadan Parisar. Hittum einmitt straka her a hostelinu fra Amsterdam sem lofudu ad segja okkur fra ollu tvi skemmtilegasta i borginni - engu ologlegu samt!

Getum vonandi sett inn myndir bradum, thad var sma camera-time a flugvellinum med mommum okkar med tarin i augunum og vonandi getum vid sett eitthvad inn sem fyrst.

Astarkvedjur, Melkorka og Dilja

mánudagur, 26. maí 2008

4 dagar!

Erum bara aðeins að prófa þetta núna hérna heima en ætlum að byrja að blogga strax og við komum út en við fljúgum til Kaupmannahafnar næsta föstudag 30.maí, gistum þar í eina nótt og förum síðan til Berlínar - restin er ennþá óákveðin. Gróft ferðaplan af því sem er búið að ákveða er þetta:

30.maí - Flogið til Kaupmannahafnar og Interrail byrjar

28.júlí - Melkorka flýgur heim til Íslands

17.ágúst - Diljá flýgur til Perth í Ástralíu

28. október - Við hittumst á Hawaii - Diljá flýgur frá Ástralíu og Melkorka frá Íslandi

6. nóvember (eða u.þ.b.) - Fljúgum til Los Angeles og skoðum the U S of A

14. desember (ekki alveg fast) - Fljúgum heim í jólastressið frá New York

Búnar að setja línk á myndasíðuna hérna til hliðar en myndir fara ekki að koma fyrr en við komumst í einhverja tölvu þarna úti sem leyfir okkur að hlaða inn myndum, það eru víst ekki allar.

Bloggum næst eftir að við komum út!