föstudagur, 21. nóvember 2008

Athens, Georgia

Ja vid erum nu ekki bunar ad vera duglegar ad blogga en vid erum tho allaveganna duglegar ad taka myndir, settum inn naestum 300 nyjar myndir i gaer.

San Francisco var frabaer en rosalega kold, orugglega ekki midad vid heima en midad vid hitann sem vid vorum bunar ad vera i undanfarid la vid ad vid daeum ur kulda a leidinni fra flugvellinum. Vid vorum audvitad bara i stuttbuxum og flip-flopum, bjuggumst ekki alveg vid thessu. Hogudum okkur eins og algjorir turistar thar, skodudum allt sem var thess vert ad skoda. Besta var samt orugglega Alcatraz fangelsid, saum samt ekki Sean Connery sem var synd.

Nuna erum vid hins vegar i litlum bae sem heitir Athens i Georgia i Bandarikjunum. Ekki Georgia landid, thetta hefur verid ad skapa orlitinn misskilning hja folki en nei, vid erum ekki komnar alla leid til Russlands. Enntha. Nuna eru bara rett rumlega 3 vikur thangad til vid komum heim, ekkert sma skritid ad hugsa ser thad tvi ad um naestu helgi eru komnir 6 manudir sidan vid logdum af stad. Stelpurnar sem budu okkur ad koma hingad til sin hittum vid eftir bara 2 vikur og hofum haldid sambandi vid thaer i alla thessa manudi og erum svo allt i einu komnar til theirra. Thetta er rosalega fallegur litill baer og fullur af studentum thannig ad thad er nog af fjori! Vid erum ad reyna ad komast inn i lifid herna i sudurrikjunum, sidasta manudag horfdum vid a ameriska fotboltann, grilludum sykurpuda og hlustudum a country tonlist allt kvoldid og daginn eftir forum vid med stelpunum a kristilega samkomu herna i baenum. Vid verdum ad reyna a koma okkur svolitid inn i kulturinn herna og kirkjan er audvitad svo rosalega mikilvaeg fyrir Bandarikjamenn og tha serstaklega herna i sudurrikjunum. Thetta var vaegast sagt mjog olikt tvi sem madur hefur sed heima, ekki alveg eins og ut ur Sister Act en svona naestum tvi.

Annars erum vid bara ad njota thess ad geta slakad adeins a herna i alvoru husi og svona, bunar ad vera a hostelum svo lengi og nuna er thad bara buid. 8.des fljugum vid sidan til New York thar sem Diljarmamma kemur og hittir okkur thar og eydir nokkrum dogum med okkur thar adur en vid KOMUM HEIM 14.desember! Otrulega skritid ad hugsa til thess ad thetta se bara ad klarast nuna en thessi ferd er buin ad vera thad besta sem vid hofum gert, algjorlega storkostleg! Vorum einmitt ad skoda gamlar myndir og sja hvad vid erum bunar ad gera alveg otrulega mikid sidan vid logdum af stad og hitta mikid af folki. Erum mjog heppnar ad hafad fengid taekifaeri til ad gera thetta, alveg ogleymanlegt.

En vid aetlum ekki ad trufla ykkur frekar vid undirbuning heimkomupartysins okkar, thad er allaveganna fullt af nyjum myndum a sidunni. Er ekki alveg i besta standinu til ad blogga mikid nuna, heilinn ekki alveg kominn i samt lag eftir gaerkvoldid (bara grin... ef mamma er ad lesa thetta).

Kossar og knus fra Georgiu - engar ahyggjur, ekkert strid i fylkinu, bara landinu!

miðvikudagur, 5. nóvember 2008

Hawaii og fleira

Ja vid aettum ad skammast okkar nuna enda ekki bunar ad skrifa neitt sidan vid vorum i Sydney og margt buid ad vera i gangi sidan tha. Vid erum samt nokkud duglegar ad setja inn myndir reglulega svo oft eru komnar inn nyjar myndir tho ad thad se ekki neitt nytt blogg. Eftir Sydney forum vid til Brisbane og vorum thar i taeplega tvaer vikur og skemmtum okkur alveg frabaerlega. Kynntumst thar mjog storum hopi af folki, adallega Bretum en lika folki fra Kanada og Nyja-Sjalandi og Irlandi - thannig ad thad var mjog mikil enska tolud, med allskonar mismunandi hreim, mjog fyndid. Reyndum ad na upp einhverri brunku i Brisbane of erum enntha ad reyna, vitum ekki alveg hversu vel thad er ad ganga, thessi hvita islenska hud er einhverra hluta vegna ekki alveg ad taka a moti neinum litabreytingum tvi midur.

I Brisbane kynntumst vid i fyrsta sinn ad alvoru tvi sem Astralir kalla goon. Strakarnir okkar i Perth voru of godir til ad drekka thetta en i Brisbane kynntumst vid ferdalongum sem hofdu verid ad ferdast margir i meira en halft ar og litill peningur eftir og tha er thad bara goon. Goon er semsagt hrikalega saett og vont hvitvin i boxi sem enginn heilvita madur myndi drekka ef thad kostadi ekki bara um thad bil 1000 islenskar kronur og haegt er ad skipta tvi a milli thriggja og eiga ansi gott kvold - 300 kronur er ansi gott ef madur er ad spara pening. Versta ad samt thad ad adur en madur byrjar ad drekka tharf madur ad finna eitthvad til ad drekka ur eins og vatnsfloskur, bjorfloskur, kokdosir, tebolla - bara nokkurn veginn hvada ilat sem er. Thar af leidandi litur hopur af ungum og heilsusamlegum ferdalongum sem situr saman og drekkur goon meira ut eins og hopur af ronum sitjandi uti a gotu ad drekka odyrt hvitvin ur fyrsta ilati sem their sja - og kannski er ekkert mjog mikill munur a thessum tveim.


Allaveganna skemmtum vid okkur mjog vel i Brisbane og vorum mjog leidar ad thurfa ad kvedja alla vinina thar thegar vid flugum til Hawaii. Flugid var 9 og halfur timi og thad var ekkert Emirates nuna, thetta var bara thad odyrasta sem haegt var ad fa svo enginn matur ne drykkir og engar myndir sem haegt var ad velja ur. Vid vorum ordnar alltof godu vanar eftir ad hafa flogid med Emirates adur en thetta tokst a endanum og her erum vid nuna. Reyndar komnar til Maui nuna sem er miklu meira fyrir okkur en Honolulu. Honolulu er algjor turistaborg, fullt af hahysum ut um allt sem eru oll hotel og oll thessi hotel eru full af rikum Bandarikjamonnum i frii. Ekkert serstaklega gaman en vid akvadum bara ad leysa thetta med tvi ad liggja bara a strondinni i fimm daga - mjog gott! Halloween var sidan audvitad tekin med trompi tharna, thetta a ad vera staersta gotuparty i Bandarikjunum a Halloween og thad var algjorlega ruglad. Settum inn slatta af myndum fra thessu, segja kannski meira en morg ord!

A sunnudaginn sidasta tokum vid sidan ferjuna fra Oahu til Maui sem tok 4 tima og komum strax a thetta frabaera hostel thar sem vid erum nuna og verdum fram a naesta sunnudag thegar vid forum til San Francisco! Forum strax fyrsta daginn med fullt af folki af hostelinu a otrulega fallega strond thar sem vid gatum hoppad i sjoinn og ad sjalfsogdu drukkid einn eda tvo bjora til ad svala thorstanum - en bara thess vegna ad sjalfsogdu. Vid hlidina a thessari strond var sidan miklu minni strond thar sem var svokallad Sunset Party sem var allt fullt af noktu gomlu folki - adallega monnum - sem var mjog... ahugavert. Folk hafdi tekid med ser allskonar trommur og hljodfaeri og spiladi a thetta a medan solin for nidur, yndislega fallegt. Myndavelin thurfti ad sjalfsogdu ad verda batterislaus a thessu augnabliki en nadum samt einni eda tveim myndum.


Daginn eftir forum vid med sma hop fra hostelinu okkar i fjallgongu i gegnum frumskoginn thar sem vid gatum stoppad a leidinni og bordad guava avexti beint af trjanum og villt hindber. Alveg frabaert tho ad thad hafi verid sma skyjad og rignt adeins a okkur a leidinni nidur, thad er bara svo heitt ad madur tekur varla eftir tvi. Herna eru samt oftast sky uppi i fjollunum tho ad thad se sol nidri i baenum, stundum liggur lika halfgerd thoka yfir ollu thegar eitt af eldfjollunum a eyjunum er ad gjosa. I gaer fylgdumst vid sidan bara med kosningunum - mjog thaegilegt ad a medan thaer byrjudu klukkan 10 a austurstrondinni var klukkan bara 4 um daginn herna thannig ad madur thurfti ekkert ad vaka frameftir eftir nidurstodunum og gatum fagnad sigri Obama snemma! I dag er sidan planid bara ad skella ser a strondina, en ekki hvad, med einhverju af folkinu sem vid hofum kynnst herna. Gaman gaman!


Settum inn fleiri myndir i dag, orugglega fullt af leidinlegum myndum af fjollum og blomum en lika einhverjar af folki. Og bjor.

Kossar og knus og fullt af ast fra Hawaii, erum nu farnar ad sakna ykkar heima frekar mikid!