4 dagar!
Erum bara aðeins að prófa þetta núna hérna heima en ætlum að byrja að blogga strax og við komum út en við fljúgum til Kaupmannahafnar næsta föstudag 30.maí, gistum þar í eina nótt og förum síðan til Berlínar - restin er ennþá óákveðin. Gróft ferðaplan af því sem er búið að ákveða er þetta:
30.maí - Flogið til Kaupmannahafnar og Interrail byrjar
28.júlí - Melkorka flýgur heim til Íslands
17.ágúst - Diljá flýgur til Perth í Ástralíu
28. október - Við hittumst á Hawaii - Diljá flýgur frá Ástralíu og Melkorka frá Íslandi
6. nóvember (eða u.þ.b.) - Fljúgum til Los Angeles og skoðum the U S of A
14. desember (ekki alveg fast) - Fljúgum heim í jólastressið frá New York
Búnar að setja línk á myndasíðuna hérna til hliðar en myndir fara ekki að koma fyrr en við komumst í einhverja tölvu þarna úti sem leyfir okkur að hlaða inn myndum, það eru víst ekki allar.
Bloggum næst eftir að við komum út!

10 Comments:
Vá hvað síðan er orðin flott - hvar fenguð þið svona flott look?
Gangi ykkur vel á föstudaginn, ekki gráta í vélinni :-)
Hlakka til að lesa uppdeitin, þú fylgist svo vonandi með okkur líka
...og ekki skilja töskuna þina eftir í skóbúðum
kommenta, kommenta, kommenta....ég ætla að vera dugleg að kommenta.
takk fyrir bíóferðina í gær...þetta var nú meiri stelpuferðin :)
Góða ferð og gangi ykkur vel. Við fylgjumst spennt með.
Koss og knús
líka fleiri komment á mitt blogg takk - ég skal vera dugleg að kommenta hér ef hinir kommenta hjá mér :-)
nú eruð þið komnar til KEF, við hlökkum til að heyra frá ykkur sem fyrst.
Góða ferð
Katla
Elsku Diljá, óska þér hinnar bestu ferðar, hefði viljað fá að knúsa þig áður en þú fórst. En það geymist þangað til þú kemur til baka. Við fylgjumst öll með þér og hlökkum til að lesa ferðasöguna þína
kveðja frá öllum tengdum Önnu Lilju
Kæru dönsku stúlkur, gaman að vita af ykkur í Kóngsins Köbenhafn. Góða ferð til Berlínar á morgun. We love you sooo much! Mamma og Kiddi cool. Góða nótt.
Hæ Melur ég sakna þín gúgúlega mikið og leiðinlegt að geta ekki kvatt þig og allt það. Ég var að henda Gulla drulluskítugum úr rúminu þínu, hann var farinn að spora allt rúmið út.
kv: kiddi cool
Elsku stelpurnar
Erfitt var að kveðja ykkur á flugvellinum í gær, en líka gaman hvað þið voruð glaðar og spenntar. Við mömmurnar þurrkuðum tárin og reyndum að bera okkur vel. Fjarska tómlegt heima og ég og kisurnar ráfum um og vitum ekki alveg hvað við eigum af okkur að gera. Gott að fá SMS frá þér Diljá mín eins og við vorum búnar að semja um. Það róar mömmusálina eins og þú veist.Njótið lífsins g góða veðursins í Berlín.
Ohh ég er strax farin að sakna þín Melkorka mín. Vonandi hafið þið það gott stelpur :) Hlakka til að lesa ferðasögurnar hér á blogginu. Kossar og knúsar
Ólöf Sif :* :* :)
Skrifa ummæli
<< Home