laugardagur, 31. maí 2008

Berlin!

Jaeja tha erum vid loksins lagdar af stad og akkurat nuna erum vid i Berlin. Komum til Kaupmannahafnar frekar seint i gaer og endudum a tvi ad labba um thar i leit ad mat i adal horugotu baejarins, vid vorum svo saklausar ad vid heldum fyrst ad allar thessar konur hlytu bara ad vera ad bida eftir einhverjum a thessum gotuhornum en o nei, thad reyndist ekki vera thannig. "Looking for a date?" Ehm, nei. Vid komumst ad tvi ad fall er fararheill thar sem hradbanki gleypti kortid hennar Melkorku rett eftir ad vid lentum sem var frekar mikid skull vaegast sagt. Komumst tho a leidarenda thar sem fraenka hennar Melkorku skaut skjolhusi yfir okkur og okkur tokst ad sofa i svona 5 tima adur en vid maettum aftur a lestarstodina klukkan half-atta. Reyndar for ekki lestin fyrr en half tiu og a thessum tima eyddum vid timanum i ad fylgjast med lestarstodvaronunum, gaman ad segja fra tvi ad vid hittum einmitt einn islenskan rona strax fyrsta kvoldid okkar. Okkur tokst tho loksins ad na lest til Hamburgar og thadan til Berlinar thar sem vid erum staddar nuna. Vid erum a alveg frabaeru hosteli (kannski adallega thar sem her er mikill fjoldi af karlmonnum sem eru mjog heppnir med utlit) og hofum hugsad okkur ad lita adeins a naeturlifid i kvold og nota naestu daga i ad turistast og skoda Brandenburgarhlidid, Berlinarmurinn og fleira. Erum ekki alveg bunar ad akveda hvad vid gerum naest en erum ad hugsa um ad fara naest til Amsterdam og thadan Parisar. Hittum einmitt straka her a hostelinu fra Amsterdam sem lofudu ad segja okkur fra ollu tvi skemmtilegasta i borginni - engu ologlegu samt!

Getum vonandi sett inn myndir bradum, thad var sma camera-time a flugvellinum med mommum okkar med tarin i augunum og vonandi getum vid sett eitthvad inn sem fyrst.

Astarkvedjur, Melkorka og Dilja

9 Comments:

Blogger Una said...

Frábært að frétta að allt gangi nokkurn vegin vel. Ég vona að melkorka fái kortið sitt aftur???
Berlín er frábær, njótið hennar vel, og ekki eyða allt of miklum tíma með rónunum....
Kveðja frá okkur í Englandinu, og slefukossar frá Iðunni

31. maí 2008 kl. 20:00  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvað var mamma búin að segja um hverfin í kringum járnbrautarstöðvarnar í Evrópu ! Gott að þið komust í hús á endanum óhultar, en elsku stelpur ekki vera að glannast seint á kvöldin.Hlakka til að heyra meira af Berlín og sætu strákunum.
Knús og meira knús.

31. maí 2008 kl. 20:15  
Anonymous Nafnlaus said...

Mæli með dýragarðinum í Berlín. Og ekki gleyma ljótu/flottu kirkjunni.

Ég hef áhyggjur af þessu kortaleysi hennar Melkorku. Hvernig reddast það?

Íslendingar finnast um allan heim (passa sig að tala ekki illa um fólk svo það heyri til, maður veit aldrei) bæði rónar og aðrir.

Endilega takið myndir af sætu strákunum, sérstaklega ef þeir eru berir að ofan.

Koss og knús.

1. júní 2008 kl. 12:26  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Hó! Gaman hvað það er gaman hjá ykkur. Gott að þið eruð ekki lokaðar inni í dýragarði eins og hin dýrin sem þið voruð að skoða. Ég bið um leiðbeiningar með að setja inn athugasemdir..lendi í stöðugu basli!Faðmlag frá Melkorkumömmu (vona að þetta virki núna!)

1. júní 2008 kl. 16:45  
Anonymous Nafnlaus said...

Önnur tilraun! Kisurnar biðja að heilsa...og ég er búin að hengja upp stúdentsblómin til þurrkunar inni hjá þér ástin mín...Love Melkorku mamma

1. júní 2008 kl. 16:52  
Anonymous Nafnlaus said...

Það gleður gamlan sagnfræðing að frétta að enn eru til Íslendingar sem halda í heiðri þeim gamla og góða frónska sið að vera rónar í Kaupinhafn. Við vonum bara að þessi detti ekki niður stiga og fótbrjóti sig...Þá þyrftum við að grafa hann upp og flytja í þjóðargrafreitinn á þingvöllum aumingja manninn...hvílík örlög, hvílík örlög!

1. júní 2008 kl. 18:45  
Anonymous Nafnlaus said...

Elskurnar mínar það gleður mig hversu gaman er hjá ykkur. Mér fannst sms-ið mjög gott, piwo haha.
bloggið nú fljótt aftur
ástarkveðja
elín

2. júní 2008 kl. 00:59  
Anonymous Nafnlaus said...

já ég hef líka áhyggjur af kortinu hennar Melkorku, hvernig leystist það mál? Það er bannað að blokka svona hálfar sögur.
hlakka til að heyra meir og sjá myndir.
katla
ps. Diljá, Dagur er í stöðugri þjálfun, þetta verður komið 17des!

2. júní 2008 kl. 10:35  
Blogger Una said...

Hæ hæ Diljá,
Ég var hjá vinum mínum sem bjuggu einu sinni í perth um helgina. Þau segja að bestu farfuglaheimilin í Perth með skemmtilegasta fólkinu eru Cotesloe og Fremantle.
Þau þekkja líka stelpu frá Perth sem var að ljúka Evrópuferðalaginu sínu og gisti þá m.a. hjá þeim, sem væri eflaust til í að hitta .ig að spjalla. Hún heitir Claudia og er dóttir vinafólks þeirra. Hún lét mig fá netfangið hjá mömmunni ef þú vilt hafa samband einhvern tíma
Allir biðja að heilsa

2. júní 2008 kl. 18:39  

Skrifa ummæli

<< Home