sunnudagur, 14. september 2008

Vor


Tha erum vid byrjadar ad skrida inn i vorid herna i Astraliu, frekar skritid svona i midjum september thegar madur er frekar innstilltur a ad veturinn se ad koma. Herna eru allir hins vegar ad draga fram grillid og opna sundlaugarnar sinar (frekar margir med sundlaugar i gardinum sinum!). Finnum mikinn mun a hitanum fra tvi ad vid komum hingad fyrst og nuna, sjorinn er samt enntha skitkaldur en thad stoppar ekki allt brimbrettafolkid sem madur ser a hverjum degi ad pina sig afram i sjonum.

Plonin eru ad breytast frekar mikid thessa dagana utaf peningaskorti og lika thar sem vid gerdum okkur ekki alveg grein fyrir tvi hvad Astralia er otrulega stort land. Fyrstu plon voru ad sjalfsogdu ad ferdast um allt land thvert og endilangt og skoda allt sem vid vildum og vid bjuggumst eiginlega vid tvi ad thad yrdi alika audvelt og i Evropu. Mjog rangt. Ef madur vill komast a milli tveggja storra borga herna, eins og Perth og Melbourne tharf madur ad fljuga i 4-5 tima a medan 5 tima flug kemur manni til Asiu fra Evropu. Vid saum engan veginn fram a ad hafa efni a thessu ollu, Evropa tok frekar vel i veskid, ekki odyrasti stadur i heimi, svo vid akvadum ad vid yrdum frekar ad minnka transportid og vera lengur a hverjum stad. Thar sem okkur vantar lika pening erum vid byrjadar ad leita okkur ad einhverri vinnu til styttri tima herna i Perth, vinkona okkar er buin ad bjoda okkur vinnu a veitingastad en hann er vist frekar langt i burtu en thad gaeti vel gengid. Veit ad thetta hljomar ekki alveg eins aevintyralegt og fyrri plonin en vid vorum alveg tilbunar til thess ad thurfa ad breyta plonunum ef thad kaemi til thess og vid aetlum ad lata reyna a thetta. Eftir Perth aetlum vid sidan ad fljuga til Brisbane a austurstrondinni og koma okkur thadan nidur til Sydney thadan sem vid fljugum til Hawaii 28.oktober. Aettum ad na sma sol thar og thad a ad vera mjog falleg keyrslan nidur eftir strondinni fra Brisbane til Sydney.

Annars er ekki mjog mikid ad fretta, erum ad setja inn myndir jafnt og thett thannig ad thad eru alltaf ad baetast einhverjar myndir vid. I sidustu viku forum vid ut fyrir borgina herna til smabaejar sem heitir Margaret River og slokudum thar a i nokkra daga, otrulega fallegt thar og saum loksins kengurur! Strakunum finnst lika mjog fyndid hvad vid erum spenntar yfir ollum pafagaukum sem fljuga framhja okkur, their eru i ollum regnbogans litum og vid erum ekki vanar ad sja alvoru pafagauka nema bara i dyrabudum en herna fljuga their um allt skraekjandi. Um sidustu helgi atti Peter vinur okkar sidan afmaeli, mikid fjor thar og i gaer vorum vid i afmaeli hja Ashley vinkonu okkar sem vid kynntumst herna uti. Themad i afmaelinu var semsagt Drinkolympics og thad fol i ser fjogur lid, graena, gula, rauda og blaa lidid, sem thurftu ad keppa sin a milli i alls konar thrautum eins t.d. og hindrunarhlaupi, leysa Rubikscube og reypitogi. Myndin herna fyrir ofan er semsagt fra thessu afmaeli, flestir okkar vinir herna uti samankomnir tharna, mjog gaman. Sjaid hvort thid getid ekki fundid okkur a thessari mynd, Dilja er bla og Melkorka gul. Erum lika bunar ad setja nokkrar myndir inn a myndasiduna fra thessu afmaeli!

Reynum ad blogga reglulegar nuna en eins og mommur okkar segja, thad er kannski ekki mikid meira ad fretta en strakar og bjor en thad hlytur nu einhverjum ad finnast thad ahugavert!

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

gaman gaman, loksins komið blogg!
...og allt í lagi að lesa um strákana og bjórinn líka. Svo held ég að það sé hluti af gapyear reuynslunni að vinna ólöglega einhvers staðar á leiðinni.
Við förum til Barcelona í síðbúna brúðkaupsferð á fimmtudaginn. Hlökkum mikið til! Verðum í Barceloneta eins og þið mamma þarna um árið. Vertu svo dugleg að kommenta líka á bloggið okkar, ég er farin að halda að það lesi það enginn nema Amma Gee.
Knús frá okkur öllum....þ.e. Unu varamömmu, Helga sæta og Iðunni hornös Helgadóttur

14. september 2008 kl. 12:47  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég tek undir með Unu, allt blogg er betra en ekkert blogg eða þannig! Greinilega mikið fjör í þessu Drinkolympics afmæli og smá tilbreyting í myndefninu. Hvað varð um Nýja - Sjáland? Er það dottið út úr ferðaáætluninni? Stóóóóórt mömmuknús.

14. september 2008 kl. 16:17  
Anonymous Nafnlaus said...

Æ, ég fékk saknaðarkast þegar ég sá allar nærbuxurnar á snúrunni...þessar sem ég er svo vön að hengja upp fyrir stóru stelpuna mína...Og æ, eg fékk alveg hjartaverk þegar ég sá baksvipinn ykkar þar sem þið sitjið á ströndinni...eitthvað svo krúttlegt. Þið eruð bestar, flottastar og frábærastar!Melkorkumamma

16. september 2008 kl. 10:37  
Anonymous Nafnlaus said...

ok, first thing first, hvernig var á leiknum? Lýsingar af beinbrotum, blóðnösum og hreðjartökum óskast.
second, hvaða hræðsla er þetta við kaldan sjó, hér við Ísland syndir fólk í sjónum Á HAUSTIN.....Svona, út í með ykkur.
Varðandi vinnu, getið þið ekki svo selt fólk hugmyndir um frábært ferðalag á Íslandi? Ég myndi borga pening fyrir góða leiðsögn/umsögn.
Hver vann drinkolympics og hvernig stóðuð þið ykkur? Gastu notað eitthvað af öllum drykkjubrögðunum sem ég var búin að kenna þér? (úpps, þetta á kannski ekki heima á þessu bloggi, svo mikið af "mömmum" sem lesa og skrifa)

17. september 2008 kl. 22:10  
Anonymous Nafnlaus said...

Thad verdur allaveganna ekki mikid synt i sjonum thessa helgina - buid ad loka strondinni thar sem hval rak a land i dag og allt er fullt af hakorlum i vatninu, bara nokkrum metrum fyrir utan strondina.

Allskonar sportlysingar fyrir brodur minn i naesta bloggi a morgunn eda um helgina.

18. september 2008 kl. 10:13  
Anonymous Nafnlaus said...

Sé á myndunum að þú verður ekki lifrar-donor á næstunni Diljá - en mikið er gaman að sjá hvað þið Melkorka njótið ykkar vel í ferðinni. Munið að fagna vel á laugardaginn ef ísl. kvenna- landsliðið kemst á EM eftir að hafa unnið eða gert jafntefli við frakka. Þá megið þið minna ástralana á að oft veltir lítil þúfa stóru hlassi ! Sé einnig á myndunum að þið hafðið þegar kynnst mörgum hobbittum í Ástralíu en hvernig var það, átti ekki líka að leita þeirra á Nýja Sjálandi ?

24. september 2008 kl. 10:36  

Skrifa ummæli

<< Home