miðvikudagur, 16. júlí 2008

Pokusaj

Jaeja, aetli thad se ekki vid haefi ad byrja a tvi ad bidjast afsokunar a bloggleysinu en thad er mjog einfold skyring a tvi: Vid hofum bara verid ad skemmta okkur of vel. Veit ekki hversu mikid vid bloggum i thetta skiptid adur en vid forum ut og skemmtum okkur enn meira en allaveganna eitthvad.

Sidast vorum vid a leid til Vinar a urslitaleikinn og thad sveik okkur ekki. Thad var otrulegt ad geta verid a stadnum med ollu thessu folki og gaman ad sja hvernig thyskir og spaenskir addaendur letu thad ekkert a sig fa med hvada lidi folk helt heldur voru allir saman i einni hrugu hond i hond og ekkert vandamal eins og madur heyrir stundum af i tengslum vid fotboltann. Versta vid thetta var ad allar gotur sidan hofum vid verid med a heilann hina ymsu fotboltasongva eins og 'Spanien Spanien alles ist vorbei!' og 'Lu-Lu-Lu Lukas Podolski'.

Eftir Vin la leidin til Prag thar sem vid hittum aftur amerisku vinkonur okkar tvaer sem vid hittum fyrst i Florens. Thad var vaegast sagt miklir fagnadarfundir og vid skemmtum okkur konunglega med theim og fjorum astrolskum strakum fra hostelinu okkar. Forum t.d. a fimm haeda naeturklubb sem a ad vera sa staersti i Austur Evropu og hann sveik ekki. Annars lobbudum vid bara mest um borgina og vorum mjog hrifnar af henni, otrulega falleg borg og godur andi yfir henni en frekar dyr midad vid ad vera i Austur Evropu enda vid ordnar mjog godu vanar eftir Bratislava thar sem bjorinn kostadi 40 kr. Eftir Prag aetludum vid okkur ad fara til Krakow og thadan nidur eftir A-Evropu en tha fengum vid tilbod sem vid gatum ekki hafnad svo thad forst fyrir. Hofdum nefninlega hitt thrja straka i Bratislava sem vid fengum Facebookid hja (enn ein sonnun fyrir notagildi Facebook, Johannes) og their sogdust vera ad fara a Exit festival sem er 200.000 manna tonlistarhatid i Serbiu med fullt af hljomsveitum og spurdu hvort vid vildum ekki bara koma med. Vid litum hvor a adra a hrada ljossins og hugsudum svo 'Af hverju ekki?' og slogum til. Keyptum mida a hatidin og tjaldsvaedid og thad var aldrei litid til baka.

Eftir Prag forum vid til Belgrad - mjog long lestarferd thar! Leist ekkert serstaklega vel a Belgrad, borgin er oll frekar dimm og drungaleg og husin sum enntha med risastorum sprengjuholum i. Hitinn var naestum obaerilegur svo vid eyddum bara timanum a strond sem er inn i midri borginni og reyndum ad bradna ekki. Hittum i Belgrad thrja Breta sem voru a leidinni a Exit lika og endudum a ad taka med theim lestina til Novi Sad thar sem hatidin var haldin og tjalda med theim thar (keyptum gullfallegt tjald sem entist mjog vel en var skilid eftir). Hittum sidan strakan thrja fra Bratislava og vorum tha komnar med ansi gott crew, umkringdar breskum herramonnum, ekki haegt ad kvarta mikid undan tvi. Hatidin sjalf var frabaer fyrir utan ad hitinn var gifurlegur alla dagana og ekki gaman ad vakna upp a hverjum morgni i svitabadi auk thess sem thad var ryk ut um allt i loftinu vegna thess hvad thad var thurrt. Sviti og ryk fer ekki vel saman - vid vorum kroniskt skitugar og forum i margar margar sturtur a dag! Reynum ad setja inn myndir af hatidin sem fyrst tvi thaer lysa stemmningunni orugglega betur. Forum eftir Exit til Belgrad i eina nott og thad var otrulegt hvad thad var mikill luxus ad fa ad sofa aftur i venjulega rumi med kodda og teppi eftir ad hafad sofid a bleikri vindsaeng i sveittu tjaldi i naestum viku. Lestarferdin fra Novi Sad var hins vegar mikil lifsreynsla thar sem thad virdist sem thad se ekkert til sem heitur 'Lestin er full!' i Serbiu heldur halda their bara afram ad selja mida ad tvi er virdist endalaust. Aldrei hofum vid komid i jafn trodinn lestarvagn, vid satum nanast i fanginu a naesta manni og thad versta var ad engum fannst neitt tiltokumal ad kedjureykja allan timann thott ad vaeri enginn stadur til ad aska a nema, tja, oxlin a naesta manni.

Nuna erum vid hins vegar i Sarajevo, komum hingad i gaer fra Belgrad - atta timar i rutu voru ekki alveg thad skemmtilegasta en vid lifdum thad af. Sarajevo er otrulega olik Belgrad, falleg borg i otrulega flottu baejarstaedi i fjollunum. Borgin sjalf er sidan ekkert lik storborg heldur er hun frekar eins og litid thorp, goturnar eru allar litlar og throngar og inni a milli eru litil torg og gosbrunnir med kosi veitingastodum og isbudum. Ekki slaemt! Verdum her i eina nott i vidbot og sidan aetlum vid til Mostar sem vid hlokkum mikid til, thar eru vist um 60% husanna enn med sprengjuholum i en baerinn og bruin sem liggur yfir ana i baenum eru stolt Bosniumanna og bruin sjlaf thykir mikid sameiningar og fridartakn fyrir landid. Sidan er thad orugglega Svartfjallaland og Kroatia en thad gaeti tho allt saman breyst.

Ast fra Bosniu!

15 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Kæru sveittu ferðalangar. Okkur var farið að þyrsta eftir fréttum af ykkur og því var sérlega gaman að lesa þessa færslu. Sviti, hiti, ryk og tjaldbúðir hljóma nánast eins og stemmarinn var á Hellu hjá okkur Kristni á Landsmóti hestamanna. En allt þess virði. Nú langar okkur til Prag eftir þessar fögru lýsingar ykkar (en ekki langar okkur í stöppuðu lestina! OMG! Það hefur nú reynt á geðprýði ykkar.) Ást frá sólríka Íslandi, Melkorkumamma og Kristinn bróðir.

16. júlí 2008 kl. 12:53  
Anonymous Nafnlaus said...

Jeeiiiiii stelpurnar fundnar aftur - mig var farið að lengja eftir færslu. Það hefur bjargað ykkur að mamma Diljár er ekki í miklu netsambandi þessa dagana svo hefur ekki getað kvartað mikið yfir bloggleysinu. Annars væri hún ábyggilega búin að setja inn 100 komment. Gott að allt gengur vel. Reynið svo að láta ekki alveg svona langt líða á milli næst!
Knús frá okkur öllum og sérstaklega frá Iðunni!

16. júlí 2008 kl. 13:02  
Anonymous Nafnlaus said...

Loksins nýjar fréttir.
Ég átta mig á að það var ekki aðalatriðið, en gaman væri að heyra e-h af því hvaða tónlist var flutt á hinni merku hátíð? Eða fór það framhjá ykkur kannski :)

16. júlí 2008 kl. 15:08  
Anonymous Nafnlaus said...

sammála síðasta ræðumanni....ég vil heyra hvað var í boði á hátíðinni!

Og já, spurning hvort maður skelli sér til Prag í haust. Það var verið að auglýsa bein flug þangað :)

16. júlí 2008 kl. 18:32  
Anonymous Nafnlaus said...

hey Diljá,
Jason vinur minn frá London var að flytja til Adelaide í vikunni og er eitthvað voðalega einmana - á ég að bjóða þig fram til að fara með honum út á lífið?

16. júlí 2008 kl. 19:02  
Anonymous Nafnlaus said...

Það vekur athygli mína að þið virðist alltaf hitta stráka í þrennum. Spurning um að slaka á bjórnum Diljá, í það minnsta ef þeir líta alltaf út fyrir að vera eineggja þríburar...

16. júlí 2008 kl. 22:43  
Anonymous Nafnlaus said...

Verðlagið mælt í bjór......gott!
SD er búin að vera á faraldsfæti, í Álftafirði og Hornafirði og nú á leið á Akranes. D er ekki enn farinn að segja Diljá, en er farinn að borða grautinn sinn sjálfur og tók í gær það allra rosalegasta frekju/reiði kast sem ég hef orðið vitni að. Það hlýtur að koma úr ykkar fjölskyldu, ég kannast ekki við svona hegðun ;)

17. júlí 2008 kl. 09:02  
Anonymous Nafnlaus said...

Frábært að þið stöllur séuð komnar aftur í bloggsamband, það var orðið æði langt síðan síðast. Skynja að genetiskur félagsþroski þinn + reynslan frá Loðmundafirði nýtist vel. Hlýtur að vera gaman að hitta fólk í ferðinni, þegar leiðar krossast á nýjan leik, í nýju landi. - Þrátt fyrir glaum og gleði, vona ég að Mostar opni augu ykkar fyrir mannvonsku í heiminum og hversu gott það er að búa á Íslandi.

17. júlí 2008 kl. 09:21  
Anonymous Nafnlaus said...

Myndir stelpur, myndir......
Sviti, ryk, bjór, engar partýblöðrur og tjald, vá hvað þetta rifjar upp góðan tíma af roskilde2005. En Diljá, ertu segja mér að þið hafið ekki tekið eftir pissulyktinni eða er serbneska klóssetteftirlitið svona rosalega strangt í að reka fólk á salernið?

17. júlí 2008 kl. 12:35  
Anonymous Nafnlaus said...

omygod þetta var líka svona á hróaskeldu! vaknaði alltaf milli 9 og 10 því það var ekki hægt að vera inní tjaldinu vegna hita og síðan held ég að ég var komin með væga eitrun útaf öllu þvaginu sem var að gufast upp.. hhaha ;) en elskurnar ég held að þið skiljið ekki hvað þetta blogg lífgar uppá daginn minn alltaf!
Zoltan. .
Elín

17. júlí 2008 kl. 20:05  
Anonymous Nafnlaus said...

ég efast ekki um það að exit hafi verið geðveikt.
ég skemmti mér frábærlega í fyrra.
ég var samt ekki á tjaldstæðinu.
novi sad er líka svo frábær borg.

annars hlakka ég til að lesa meira frá ykkur stöllum.

kærar kveðjur frá dk.

-holy leaf island.

22. júlí 2008 kl. 20:55  
Anonymous Nafnlaus said...

gaman að fá að heyra að þið skemmtið ykkur vel.
Ég verð brjálaður ef þið hafið beilað á Manu Chao...!!!

Bestu keðjur
Almar

23. júlí 2008 kl. 16:42  
Anonymous Nafnlaus said...

Hallóóóóóóó
kominn tími á annan póst!
...og myndir....!

24. júlí 2008 kl. 12:13  
Anonymous Nafnlaus said...

þar sem þið hafið greinilega tíma til að fara inná facebook, þá hlýtur líka að vera smá tími til að blogga, er það ekki?

24. júlí 2008 kl. 13:44  
Anonymous Nafnlaus said...

faridi nu ad blogga pijur..

26. júlí 2008 kl. 13:20  

Skrifa ummæli

<< Home