fimmtudagur, 5. júní 2008

I maga Evropusambandsins

Uff, tha er mjog svo undarlegri reynslu okkar i Amsterdam lokid og vid erum nuna komnar til Brussel i eina nott adur en vid forum til Parisar a morgunn og verdum thar i 3 naetur.

Vorum frekar tregar til ad kvedja frabaera hostelid okkar i Berlin, hefdum alveg oruglega verid lengur thar ef thetta hefdi ekki verid akkurat i byrjun ferdarinnar. Fundum eitthvad hostel i Amsterdam sem var thokkalega odyrt (samt naestum 10 evrum dyrara en i Berlin) og toku lestina agaetlega hressar snemma um morguninn. Lestarferdin tok einhverja 6 tima sem leid ekkert thad haegt og vid vorum komnar til Amsterdam um 3 leytid. Fundum hostelid og vorun fljotar ad sja ad thad var ekki likt tvi eins gott og fyrra hostelid var. Inni var allt mjog dimmt og litid af folki. Thegar vid sidan komum upp a 20 manna herbergid okkar voru thar nokkrir strakar sem litu ekki upp thegar vid komum inn, hvad tha heilsudu, thar sem their voru of uppteknir vid eitthvad eda allt af thessu:

a) vefja ser jonu
b) reykja jonu
c) stara ut i loftid

Vid akvadum ad skilja dotid okkar eftir og kikja adeins a nagrennid en tha vorum vid staddar einmitt i rauda hverfinu i Amsterdam og hvert sem vid litum saum vid annadhvort Coffee Shop High Times (er i alvorunni til, lika Coffee Shop Funny People!) og annad likt eda halfberar konur standandi uti i glugga, flestar reyndar ad tala i simann enda var thetta frekar snemma um daginn.

Kiktum aftur upp a herbergid og hofdu tha tvaer ameriskar stelpur slegist i hopinn og thaer voru mun verri en strakarnir thar sem thaer hlogu svo hatt ad hljodmurinn var vid thad ad springa, serstaklega onnur theirra og hefdum vid haft eitthvad almennilegt barefli efast eg um ad su stelpa vaeri a lifi i dag, svo otholandi var hun.

Fludum tvi aftur ut og hringdum i maedur okkar til ad fa sma utras fyrir vael og annad uppsafnad sem thurfti ad kvarta yfir. Theim leist ekki beint vel a stoduna og endadi med tvi ad Diljar mamma baudst til ad borga mismuninn a herbergjunum ef vid fengjum ad skipta yfir i minna herbergi. Thad gekk og vid fengum herbergi med tveim bandarikjamonnum sem for litid fyrir og vorum vid mjog thakklatar fyrir thad. Eftir thetta gekk thetta bara vel, vid gengjum mikid um borgina og endudum i gaerkvoldi a kaffihusi sem het Harlem i rolegu hverfi og endudum a tvi ad sitja thar thangad til lokadi klukkan eitt. Tha vildi eigandinn sem hafdi verid ad spjalla mikid vid okkur um Island endilega fara med okkur a matsolustad brodur hans og gefa okkur samlokur. Thetta hefdu orugglega verid mjog godar samlokur og gott fyrir okkur sem erum ad reyna ad spara en raddir maedra okkar bergmaludu og hofdum okkar og vid sogdum mjog pent nei takk. Sidan baudst hann til ad keyra okkur a hostelid sem vid afthokkudum lika med sykursaett bros a vor og sogdum ad hostelid vaeri bara handan vid hornid. Thetta var reyndar haugalygi og vid gengum skjalfandi a beinunum heim en okkur fannst vid vita betur en ad fara upp i bil med okkunnugum monnum.

Aetludum til Parisar i dag en thad var eitthvad litid um gistingu svo vid akvadum ad stoppa bara i Brussel eina nott i millitidinni og thar erum vid nuna i grenjandi rigningu, erum ekki vanar thessu eftir hitabylgjuna i Berlin og agaetis vedur i Amsterdam. Hofum thess vegna hugsad okkur ad fara og drekkja sorgum okkar i belgiskum vofflum, tha aetti thetta ad lagast.

Vonandi finnum vid bradum tolvu med usb-tengi til ad setja inn myndir, erum bunar ad taka mikid af turistamyndum.

Astarkvedjur, Dilja og Melkorka

6 Comments:

Blogger Una said...

Hæ hæ gaman að spjalla við þig áðan DIljá. Líst illa á liðið í Amsterdam, best að drífa sig úr því sorabæli...gott samt að þið skulið hafa passað ykkur svona vel.
Bið að heilsa Tour d´Eiffell - mmmmmm ég væri svo til í að vera á leiðinni til Parísar

5. júní 2008 kl. 13:56  
Anonymous Nafnlaus said...

Já, það getur stundum komið sér vel í vandræðum að hlusta á mömmurnar sínar og gott að vita að þær séu með í kollunum ykkar rétt eins og við erum alltaf með hugann hjá ykkur. Auðvitað eigið þið eftir að lenda í aðstæðum, sem þið þurfið að bjarga ykkur úr af eigin skynsemi, en ekki láta stoltið koma í veg fyrir að þið hringið í mömmu, ef þörf krefur. Njótið belgísku vafflanna og góða ferð til Parísar. Knús og aftur knús.

5. júní 2008 kl. 14:22  
Anonymous Nafnlaus said...

Haha greyin mín. Amsterdam er svo helluð borg. Vá hvað verður gaman á HAWAII ! spila á Ukulelelelele og dansa magadans. Namminammi. 28 október... Það er ekkert í það.
Setjið inn myndir!

5. júní 2008 kl. 17:33  
Anonymous Nafnlaus said...

Já, og nú byrja ég einnig að auglýsa eftir myndum. Er að fara á SANTANA tónleika eftir 14 daga í London > þannig ef að þið eruð á þeim slóðum þá . . . .

6. júní 2008 kl. 12:07  
Blogger Guðrún Helga said...

MJÖG GOTT

öfunda ykkur pínu, haldið áfram að hafa gaman og munið ávallt að hafa PIWO í hávegum.

Hringið í mig ef þið farið til POLONIA!

6. júní 2008 kl. 17:16  
Anonymous Nafnlaus said...

jæja...þið segið mér bara hvað þið gerðuð í alvöru í Amsterdam þegar þið komið heim...einhversstaðar þar sem ekki er allt fullt af mömuogpabbaeyrum....

6. júní 2008 kl. 19:50  

Skrifa ummæli

<< Home